Maison Wessman
Róbert og Ksenia Wessman, stofnendur og eigendur
Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvogen, keypti Château de Saint-Cernin í byrjun 21. aldar. Markmið hans með kaupunum er að hefja setrið aftur til vegs og virðingar og framleiða vín á heimsmælikvarða.
Viðskiptafélagi Róberts Wessman og meðeigandi, Ksenia Wessman, er afar vandlát í sínu á víni. Hún er meðstjórnandi fyrirtækisins og tekur þátt á öllum stigum vínræktunarinnar og gegnir þannig mikilvægu hlutverki hvað varðar gæði vínsins og umbúðir.
Róbert og Ksenia Wessman eru óhrædd við að leita að hinu óvænta. Þau eru nýjungargjörn en vilja um leið viðhalda hefðum og vernda sögu setursins. Með það að leiðarljósi framleiða þau einstök, frönsk hágæðavín.
Við hjá Maison Wessman vitum að til að ná sem bestum árangri þurfa ástríða og iðjusemi að fara saman sem og metnaðarfull vinna og vilji til að uppfylla ströngustu gæðakröfur. Þá er mikilvægt að heiðra arfleiðs en þora jafnframt að fara ótroðnar slóðir. Aðeins þannig verður niðurstaðan framúrskarandi.
Knúin áfram af ástríðu
Róbert Wessman hefur lengi haft brennandi áhuga á gæða vínum og víngerð. Hann leitaði í um fimmtán ár að heppilegum stað til að hefja víngerð og fyrir valinu varð Château de Saint-Cernin. Château de Saint-Cernin er kastali frá 12. öld í Bergerac héraði í Frakklandi. Þar hefur vínrækt verið stunduð öldum
saman á einstökum ræktarskikum.
Róbert Wessman heillaðist af sögu og vínmenningu Bergerac héraðsins og því varð Château de Saint-Cernin fyrir valinu. Hann lagði upp með skýra sýn og mikla trú á vaxtarmöguleikum Château de Saint-Cernin. Hann og meiðeigandi hans, Ksenia Wessman, bjuggu til metnaðarfulla viðskiptaáætlun og
ákváðu aðendurlífga og betrumbæta forna víngerðararfleifð setursins.
Þróun og vöxtur Château de Saint-Cernin heldur áfram á sama tíma og mikill metnaður er lagður í að framleiða vín á heimsmælikvarða frá sérvöldum frönskum landsvæðum, vínáhugamönnum til ánægju.
Við fylgjum framtíðarsýn okkar og treystum á sama tíma á sérþekkingu þeirra færustu
Innsæi og dómgreind ráða för
Hjá Maison Wessman hefur reynslan sýnt okkur að merkilegustu afrekin eru unnin með því að leita hins óvænta og sjá möguleika í því ókomna
Hágæða árangur undir leiðsögn þeirra bestu
Við vitum líka að framtíðarsýn er bara byrjunin. Framúrskarandi árangur krefst ástríðu og að treyst sé á færni þeirra sem fremstir eru á sínu sviði. Þess vegna eru vínin okkar framleidd undir handleiðslu hins heimsfræga vínsérfræðings Michel Rolland og teymis af heimsins bestu vínþjónum.
Vín frá Perigord héraðinu
Vín frá Limoux
Hvítvín Maison Wessman eru unnin með þrúgum frá Haute Vallée héraðinu og Océanique héraðinu í Limoux við fjallsrætur Pýreneafjalla í suðvestur Frakklandi. La Haute Vallée er í 400 til 450 metra hæð og er hæsta vínræktarsvæðið í Limoux. Það er þekkt um allan heim fyrir Chardonnay vín. Þessar aðstæður gera það að verkum að þrúgurnar þroskast hægt sem tryggir framúrskarandi ferskleika og gott geymsluþol. Océanique landsvæðið er í 200 til 300 metra hæð í vesturhluta héraðsins. Kalt, rakt og temprað loftslag og vínber sem þroskast seint gefa víninu fyllingu, mikið bragð og ferskleika.
Kampavín frá 100% Cru þorpum úr Champagne héraðinu
Kampavínið Wessman One varð til eftir náið samstarf Maison Wessman og kampavínshúss í Champagne héraðinu sem þekkt er fyrir afburðar framleiðslu. Þetta er AOP Brut Rose vín sem er 100% Grand Cru. Það er blandað á meistaralegan hátt úr 55% Pinot Noir þrúga og 45% af Chardonnay þrúgu. Pinot Noir þrúgan sem er notuð er frá Aÿ og er 100% Cru í Montagne de Reims svæðinu. Þrúgan gefur strúktur, fyllingu og áberandi ilm af rauðum ávöxtum. Chardonnay þrúgan kemur frá Oiry 100% Cru frá Côte des Blancs og gefur víninu léttan sítrus keim, steinefnarbragð og mikið geymsluþol. Landsvæðin tvö, sem hvort um sig einkennast af djúpum kalkkenndum jarðvegsgrunni og kalkkenndum yfirborðsjarðvegi, tryggja fullkomið rakastig sem býr til jafnvægi milli ferskleika og sætu í víninu.
Finndu okkur
Apotek Restaurant
Austurstræti 16, 101 Reykjavík,
ISLAND
Kjarvalsbar
Austurstræti 10a, 101 Reykjavík,
ISLAND